þriðjudagur, júní 15, 2004

Hananú!

Orðið nokkuð langt síðan ég tjáði mig hér síðast... og ýmislegt skeð.

Ég (og Emil) stóð uppi sem óumdeildur sigurvegari golfmóts Deloitte sem haldið var að Flúðum síðasta föstudag. Spilað var hörku golf og sennilega hef ég aldrei leikið betur. Við Emil náðum mjög vel saman og fengum allskonar drasl og dót í verðlaun, sumt cool annað svona hmmmmm.

Reyndar hefur golfiðkun verið í algeru lágmarki eftir mótið þar sem EM er byrjað. Leikirnir eru akkúrat á golftímanum og erfitt að sjá hvernig ég mun leysa þetta vandamál. Annars eru til lausnir við öllum hlutum, sumir vilja bara ekki sjá þær.

Ég var að ljúka við bók sem Dalai Lama skrifaði sem nefnist "Betri heimur". Þessa bók hef ég verið að lesa til þess að ná að róa mig betur í golfinu og auk þess hef ég lesið fleiri bækur eftir Lamann og aðra spekúlanta.

Ég setti mér markmið fyrir sumarið en það var að ná forgjöf fyrir neðan 30 í golfinu. Ég er nú þegar kominn í 27,5 og er ekki í vafa um það að lesturinn hefur hjálpað mér verulega í vor og það sem af er sumars (Tómas, ég get lánað þér þessar bókmenntir). Fyrst í vor tókst mér að eyðileggja heilan hring með slæmri fyrstu eða annari holu, en nú spila ég áfram og (eða hætti á skynsamlegum tíma á holu þar sem illa gengur) er yfirleitt að gera ágætis hringi.

Detroit eru síðan að flengja Lakers liðið eins og 19 ára klappstýru... verð að viðurkenna að mér finnst það alveg frábært og er að vona að þeir klári þetta í nótt. Ætlaði að horfa á leikinn en þarf að mæta á fund klukkan 9 í fyrramálið þannig að ég verð líklega að gefa þetta frá mér.

Í viðbót við þetta var ég að hefjast handa við mjög áhugavert prívat verkefni. Ég ætla að bera saman þjóðsögur ólíkra menningarheima (Grikkja, Norrænna ofl.) og skoða nokkuð vel hvað er líkt og hvað er ólíkt. Hef lúmskan grun um að það sé eins með þessar sögur og trúarbrögðin, einhver rauður þráður í þeim öllum. Hugmyndavinnan er komin af stað og nú er ég að hanna mér módel til að vinna eftir, þetta verður nú að vera svolítið vísindalegt hjá manni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home