miðvikudagur, október 22, 2003

Hananú!

Djöfull er mér rosalega illa við sumt fólk!!! OOOOOHHHHHHH ég er svo ógeðslega pirraður og illur að ég er hreinlega að missa þetta! Djöfulsins, andskotans helvíti! Jæja líður aðeins betur...

Maður getur velt því fyrir sér hverjir mannkostir manns sjálfs séu. Sennilegt verður þó að teljast að ekki komi mjög líkleg niðurstaða út úr því mati. Málið er nefnilega það að fólk skiptist að mestu í tvo hópa.

Í öðrum hópnum er fólk sem er of kröfuhart í eigin garð og setur sér óraunhæf markmið. Nær ekki að standast væntingar sínar og telur sig einhverskonar aumingja, oft að ástæðu lausu.

Í hinum hópnum eru þeir sem sjá sjálfa sig í einhverjum hyllingum. Sama hvað gegnur á, ekkert er þeim að kenna. Þeir geta talið upp endalaust mörg atriði um eigið ágæti en raunveruleikinn situr oft eftir. Stundum er þetta ágætis fólk... en oft á tíðum lifir það í heimi blekkinga!

Niðurstaðan er því sú að enginn getur dæmt sig sjálfan. Til þess þarf utanaðkomandi aðila, helst all marga úr ólíkum hópum. Margt fólk ætti að hafa vit á því að halda kjafti!

Burt séð frá því...

Djöfull er mér illt í helvítis löppinni. Var í körfu og fékk eitt stykki hné á fullri ferð beint í lærið. Get varla gengið eftir þetta hnjask og reyndar get ég eiginlega enganveginn verið... stefnir allt í erfiða nótt!

Jessica var hérna í síðustu viku, eins og flestir vita held ég. Var þó ekkert að auglýsa það svona sérstaklega, langaði að sjá hvernig hlutirnir stæðu. Þetta var góð vika...

Núna fer ég á föstudaginn að vinna í Tanga hf. Þetta á eftir að verða afbragðs leiðangur, tek eins mikið af óhreinum fötum með mér og ég get svo að mamma mín geti gert eitthvað fallegt fyrir "litla ljósið" (ég, fattaði upp á nickinu sjálfur).

Er annars á fullu í vinnunni, gaman þegar maður er ekki að gera neitt annað að vinna eins og skinka... og fara svo í golf eða bara vinna meira. Engin pressa þegar maður hættir, þá er maður alveg frjáls... skrítin tilfinning.

Jæja, hérna , heyrðu ... nei nei nei, já já!

mánudagur, október 13, 2003

Hananú!

Jæja, best að byrja á byrjuninni. Tómas minn... Veit ekki af hverju Sössinn mætti ekki en ég hafði bara enga orku til að hreyfa mig. Svo held ég nú að réttast væri að spara svolítið stóru orðin því að ekki rekur mig nú minni til þess að þú hafir tilkynnt forföll þegar þú mættir ekki sjálfur í haust. Bara svona þér til upplýsingar. Annars skal ég láta þig vita næst, og sennilega kem ég ekki í næstu 2 skipti.

Útskriftin mín er á laugardaginn 25 október. Ég verð ekki viðstaddur sjálfur þannig að það verður engin veisla, ætli ég reyni samt ekki að slá upp teiti helgina eftir... það hlýtur að covera þetta.

Var á árshátíð á laugardaginn. Þetta var allt hið skemmtilegasta og hófst að sjálfsögðu með góðri drykkju yfir landsleik. Ég eyddi mestum tíma mínum á barnum og síðan á dansgólfinu og uppi á sviði. Æi allavega fannst mér mjög gaman og gerði engum öðrum neitt nema gott þannig þetta slapp allt saman. Pabbi minn er samt alltaf svo smeikur um að ég verði mér til skammar en ennþá hefur þetta sloppið til.

Ég fer á Vopnafjörð 24 október. Er að fara að vinna í 9 mánaða uppgjöri fyrir Tanga hf. Þetta verður góður leiðangur held ég... a.m.k. fínt að fara heim aðeins og fá að éta.

Hmmmm, nóg í bili

þriðjudagur, október 07, 2003

Hananú!

Well, mættur enn á ný.

Get nú ekki sagt að það sé neitt að frétta... er samt búinn að vinna eins og skinka síðustu 2 daga og vonast til þess að geta aðeins slakað á nú á næstunni. Veit samt ekki, kemur til með að borga sig í mánaðarlok.

Aha, útskriftin mín er 25 október. Veit ekki hvort ég mæti samt sjálfur, finnst þetta ósköp ómerkilegt eitthvað.

Síðan er ég að fara að vinna í Tanga á Vopnafirði í lok mánaðarins, sennilega strax að útskrift lokinni. Það verður afbragðs leiðangur tel ég... líst vel á stykkið.

Djöfull er Gísli Marteinn leiðinlegur og asnalegur!!!!!